Íslenski boltinn

Ingvar eini nýliðinn í Færeyjahóp Lagerbäck - enginn Eiður Smári eða Grétar Rafn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingvar Jónsson
Ingvar Jónsson Mynd/Daníel
Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag hópinn sinn fyrir vináttulandsleik á móti Færeyjum 15. ágúst næstkomandi. Þetta verður fyrsti landsliðsins á heimavelli undir stjórn Svíans en hann mun fara fram á Laugardalsvelli eftir tvær vikur.

Ingvar Jónsson, markvörður úr Stjörnunni, er eini nýliðinn í hópnum en þeir Sölvi Geir Ottesen og Emil Hallfreðsson koma báðir aftur inn í hópinn eftir að hafa misst af leikjunum á móti Frakklandi og Svíþjóð.

Allir þrír markverðir hópsins spila í Pepsi-deildinni en aðrir nítján leikmenn hópsins eru atvinnumenn erlendis.

Hallgrímur Jónasson glímir við hnémeiðsli og var ekki valinn í hópinn.

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki valinn í liðið en hann er án liðs eftir að hafa gengið frá starfslokasamningi við gríska félagið AEK Aþenu. Lars Lagerbäck hafði talað um möguleikann á því að taka Eiðs Smára inn í liðið fyrir Færeyjaleikinn en ekkert varð að því.

Grétar Rafn Steinsson er sömuleiðis án félags og því valdi Lars hann ekki í hópinn. Þeir báðir geta komið inn verði þeir búnir að finna sér félag í tíma fyrir leikinn á móti Færeyjum.

Íslenski landsliðshópurinn á móti Færeyjum:

Markmenn

Gunnleifur Gunnleifsson, FH

Hannes Þór Halldórsson, KR

Ingvar Jónsson, Stjarnan

Varnarmenn

Ragnar Sigurðsson, FC København

Sölvi Geir Ottesen Jónsson, FC København

Ari Freyr Skúlason, Sundsvall IF

Indriði Sigurðsson, Viking FK

Kári Árnason, Rotherham

Birkir Már Sævarsson, SK Brann

Bjarni Ólafur Eiríksson, Stabæk IF

Miðjumenn

Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City FC

Helgi Valur Daníelsson, AIK

Emil Hallfreðsson, Hellas Verona

Jóhann Berg Guðmundsson, AZ

Rúrik Gíslason, OB

Eggert Gunnþór Jónsson, Wolverhamton Wanderers FC

Arnór Smárason, Esbjerg BK

Sóknarmenn

Birkir Bjarnason, Pescara Calcio

Kolbeinn Sigþórsson, AFC Ajax

Alfreð Finnbogason, Helsingborg IF

Gylfi Þór Sigurðsson, Tottenham Hotspur FC

Björn Bergmann Sigurðarson, Wolverhamton Wanderers FC

Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 19:45. Þetta er lokahnykkurinn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014 þar sem Norðmenn verða fyrstu mótherjarnir þann 7. september á Laugardalsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×