Venus úr leik við fyrstu hindrun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. júní 2012 16:00 Venus Williams svekkt á velli 2 á Wimbledon í dag. Nordicphotos/AFP
Venus Williams heltist úr lestinni í einliðaleik kvenna á Wimbledon-mótinu sem hófst í London í dag. Williams tapaði í tveimur settum 6-1 og 6-3 gegn hinni rússnesku Elena Vesninu. Williams byrjaði leikinnn illa og leikurinn stóð aðeins yfir í 75 mínútur. Aftur og aftur gerði Williams mistök undir lítilli pressu og þrátt fyrir dyggan stuðning áhorfenda var hún aldrei inni í leiknum. Williams er í uppáhaldi áhorfenda á Wimbledon en bandaríska konan hefur fimm sinnum unnið sigur á mótinu. „Það er ekki möguleiki að ég leggi spaðann á hilluna vegna þess að illa hefur gengið á fyrstu fimm til sex mótunum síðan ég sneri aftur. Svoleiðis geri ég ekki," sagði Williams sem hefur glímt við Sjöbergs-heilkenni en lagt hart að sér að komast á völlinn á nýjan leik. „Ég er hörð af mér, ég skal segja ykkur það, algjör nagli," sagði Williams sem féll úr umferð í annarri umerð á Opna franska mótinu á dögunum. „Því miður hef ég þurft að kljást við óvenjulegar aðstæður í íþróttinni en ég læt það ekki draga mig niður, ég er klár í áskorunina," sagði Williams sem gerir ráð fyrir að mæta á Wimbledon að ári.
Tennis Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Sjá meira