Íslenski boltinn

Ísland mætir Andorra í nóvember

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Íslands og Andorra árið 2010.
Úr leik Íslands og Andorra árið 2010. Mynd/Pjetur
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Andorra ytra í vináttulandsleik þann 14. nóvember næstkomandi. KSÍ tilkynnti það í dag.

Liðin mættust síðast í ágúst árið 2010 og segir í frétt KSÍ að leikurinn í nóvember sé hluti af samkomulagi sem var gerður í tengslum við þann leik.

Ísland leikur næst vináttulandsleiki gegn Frakklandi og Svíþjóð í lok mánaðarins og hefur svo leik í undankeppni HM 2014 í haust.

Ísland og Andorra hafa fjórum sinnum mæst á knattspyrnuvellinum og Ísland hefur unnið alla leikina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×