Gullmolarnir í lífinu 23. mars 2011 16:33 Hér fermir séra Guðný Halldórsdóttir fermingarbarnið Ragnar Vilberg Bragason. Hún segir einstakt að upplifa gleði dagsins með börnunum og fjölskyldum þeirra, þar sem þörfum hvers og eins barns sé ávallt mætt. MYND/JAK
Börn með þroskahömlun gera Jesú að ævilöngum vini á fermingardaginn. „Áður fyrr var undir hælinn lagt hvort börn með þroskahömlun fermdust, og í starfi mínu hef ég talað við margt aldrað fólk sem svíður sárt að hafa ekki fengið að fermast af því það gat ekki lært kverið sitt og var kannski ekki læst. Við þurfum ekki að vera læs til að eiga Jesú að vini. Við þurfum bara að vera læs á hjarta okkar og umhverfi," segir Guðný Hallgrímsdóttir, sem starfað hefur sem prestur fatlaðra frá árinu 1990 og þjónar sérstaklega einstaklingum með þroskahömlun. „Ég nýt ríkulegra forréttinda í starfi mínu og ef einhver hefur lært mikið á þessum tíma er það ég, bæði hvað varðar viðhorf, hugrekki, þolinmæði, vináttu og hvað þau eru dugleg að líta eftir hvert öðru," segir séra Guðný, sem árlega fermir á milli 20 og 30 þroskahamlaða unglinga. „Fermingar fatlaðra fara alfarið eftir aðstæðum hvers og eins barns, og ekki til nein ríkisleið þar. Stærsta fermingin fer fram á sumardaginn fyrsta, með nemendum Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla, en þroskahömluð börn í sérdeildum grunnskólanna fermast oftast með sínum bekk og þá kem ég inn í ferminguna með sóknarpresti. Öðrum hentar ekki að vera í hópi og eru þá fermd ein og sér, en einnig fermi ég heima hjá sumum barnanna," segir séra Guðný, sem er með fermingarfræðslu í fimm skólum og hittir fermingarbörn sín einu sinni í mánuði í fermingarkirkjunum til að gera þau heimavön þar. „Í fermingarfræðslunni fylgi ég námskrá Þjóðkirkjunnar en nota annað tungutak og nálgun. Allan veturinn geng ég út frá vinahugtakinu og tala um Jesú sem vin, því öll vitum við hvað vinir eru og hve miklu skiptir að eiga vin og vera vinur. Þegar kemur að fermingarspurningunni á fermingardaginn spyr ég því ekki: „Viltu gera Jesú Krist að leiðtoga lífs þíns?" heldur „Viltu vera vinur Jesú alla þína ævi?", og það skilja þau vel," segir séra Guðný og bætir við að dásamlegt sé að fylgjast með börnum í fræðslunni þar sem þau deila upplýsingum og fræðslu sín á milli, allt frá því hversu marga lítra af rjóma þarf í fermingartertuna yfir í spennandi skammtímavistunarúrræði. „Hálfan veturinn fikrum við okkur áfram um hvernig við ætlum að hafa ferminguna. Börnin velja sjálf sálmana, utan eins sem ég fæ að velja, og svo hafa mörg þeirra sérþarfir sem þarf að taka tillit til. Þannig hef ég fermt barn sem ekki vildi sitja til altaris með hinum heldur úti í sal þar sem það hafði átt sæti í kirkjunni áður og sat þá bara þar, og svo annan sem gat ekki hugsað sér að taka ofan derhúfuna sem hann tók bara ofan þegar hann svaf, og þá var hann með húfuna sína á fermingardaginn," segir séra Guðný um gefandi og skemmtilegt starf sitt. „Fermingardagur er sannarlega mikill dagur í lífi barns og við leggjum okkur fram um að gera hann sem bestan. Sem sóknarprestur hef ég samanburð á því að þroskahömluð börn eru ekkert öðruvísi en aðrir unglingar þegar kemur að tilhlökkuninni og þau pæla í fötum, gjöfum, hárgreiðslu og veislu, en það sem einkennir öll fermingarbörn, fötluð eða ekki, er hversu einlæg þau eru á fermingardaginn og hversu mikilvægur hann er þeim öllum." - þlg
Fermingar Mest lesið Vann Eddu og auglýsti eftir kærasta Lífið Hætt við brúðkaupið og allt í baklás Lífið Sneri við lífinu eftir skyndilegt fráfall frænda í djammferð erlendis Lífið „Þetta var ekki alið upp í mér“ Lífið Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Lífið Tíu skref í átt að nýju starti í svefnherberginu Lífið „Ég kalla mig alltaf flugfreyju þó að ég sé strákur“ Lífið Grunaði ekki að fíflalætin myndu ferðast svona víða Lífið Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Lífið Tveggja milljóna króna nefaðgerð í Tyrklandi Lífið Fleiri fréttir Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Dóttir Fox og Kelly komin í heiminn „Þetta var ekki alið upp í mér“ Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Bitin Bachelor stjarna Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list „Ég kalla mig alltaf flugfreyju þó að ég sé strákur“ Tíu skref í átt að nýju starti í svefnherberginu Fjallvegir á Vestfjörðum fengu hjartað til að slá hratt Ástfangin í sextán ár Unnur og Travis orðin tveggja barna foreldrar Sneri við lífinu eftir skyndilegt fráfall frænda í djammferð erlendis Grunaði ekki að fíflalætin myndu ferðast svona víða Tveggja milljóna króna nefaðgerð í Tyrklandi Hætt við brúðkaupið og allt í baklás Þjálfaðar til að svara spurningum frá hjartanu Lét papparassa heyra það Vann Eddu og auglýsti eftir kærasta Vorboðar láta sjá sig „Átt ekki að falla af því að þú skilur ekki spurninguna“ Walliams furðar sig á vinsældum eigin frasa á Íslandi Spöruðu hálfa milljón á mánuði og stefna á íbúðarkaup Kransakaka Jóa Fel án kökuforms Gerðu upp gamlan banka í dönsku krúttþorpi Prinsessan í sínu fyrsta hlutverki með Höllu Lærði fyrstu hundrað tölurnar í pi í sóttkví Klara og félagar í uppreisn gegn „femínistaþreytunni“ Fær nánast alltaf fullnægingu með rúnki en sjaldnar í kynlífi Sjá meira