UEFA kærir Gattuso fyrir alvarlega óíþróttamannslega hegðun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2011 12:18 Gennaro Gattuso og Joe Jordan Mynd/AFP
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur kært AC Milan manninn Gennaro Gattuso fyrir alvarlega óíþróttamannlega hegðun eftir að ítalski miðjumaðurinn skallaði aðstoðarþjálfara Tottenham eftir Meistaradeildarleik AC Milan og Tottenham á þriðjudagskvöldið. Tottenham vann leikinn 1-0 á San Siro. Eins og frægt er orðið þá missti hinn blóðheiti Gattuso algjörlega stjórn á sér eftir orðaskipti við Joe Jordan, aðstoðarmann Harry Redknapp. Hann tók Jordan fyrst hálstaki í miðjum leik og skallaði síðan Jordan þegar allt varð vitlaust þegar komið var að því að þakka fyrir leikinn. Aganefnd UEFA mun taka málið fyrir á mánudaginn kemur en lágmarksrefsing er einn leikur fyrir óíþróttamannslega hegðun og þrír leikir fyrir að ráðast á aðra leikmenn í leik. Bann Gattuso verður þó líklega enn lengra enda er öllum ljóst að UEFA mun taka hart á svona hegðun. Það er þegar ljóst að Gattuso verður í banni í seinni leiknum á móti Tottenahm sem fer fram á White Hart Lane 9. mars næstkomandi eftir að hann fékk gult spjald í umræddum leik.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ Fótbolti Fleiri fréttir Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Sjá meira