Hannes Þór og Gunnhildur Yrsa valin best Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2011 17:27 Mynd/Valli
Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, voru í dag valin bestu leikmenn Pepsi-deildanna í árlegu kjöri leikmanna deildarinnar. Hannes Þór átti frábært tímabil með KR sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari nú í sumar. Hann gekk til liðs við félagið fyrir tímabilið frá Fram og átti stóran þátt í góðu gengi liðsins í sumar. Hannes lék alla leiki liðsins á tímabilinu, bæði í deild og bikar. Gunnhildur Yrsa fór fyrir liði Stjörnunnar sem varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins í sumar. Stjarnan vann sautján deildarleiki í sumar og tapaði aðeins einum en Gunnhildur Yrsa spilaði alla leikina og skoraði alls sjö mörk. „Þetta kom mér á óvart. Auðvitað hafði þetta eitthvað verið í umræðunni en maður býst aldrei við því. Það var því mjög ánægjulegt að heyra nafnið sitt kallað við þessar aðstæður,“ sagði Hannes við Vísi eftir afhendinguna. „Það eru leikmennirnir sem velja og ég er því sérstaklega ánægður með það. Ég er mjög stoltur af þessu.“ Hannes átti frábært tímabil með KR þar sem hann varð tvöfaldur Íslandsmeistari og spilaði þar að auki í forkeppni Evrópudeildar UEFA. Þá spilaði hann sinn fyrsta landsleik á árinu og hélt í honum marki Íslands hreinu í sigurleik gegn Kýpur. „Þetta var í raun fullkomið tímabil. Við unnum tvöfalt og vorum á toppnum allt tímabilið. Þetta var lyginni líkast og þessi viðurkenning kórónar sennilega skemmtilegasta sumar sem ég hef lifað.“
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira