AC Milan vann fjórða sigurinn í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 19:04 Nesta fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / AFP
AC Milan er á fljúgandi siglingu í ítölsku úrvalsdeildinni en liðið vann í dag 3-2 sigur á Roma á útivelli. Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö marka Milan. Liðið komst á topp deildarinnar um stundarsakir að minnsta kosti en Juventus getur endurheimt toppsætið með sigri á Inter á útivelli. Sá leikur stendur nú yfir og er hægt að fylgjast með honum hér. Zlatan kom AC Milan yfir í dag með marki á sautjándu mínútu en Nicolas Burdisso náði þó að jafna metin stuttu síðar. Alessandro Nesta kom Milan aftur yfir áður en flautað var til hálfleiks. Zlatan skoraði svo öðru sinni tólf mínútum fyrir leikslok en Bojan Krkic, sem hafði komið inn á sem varamaður skömmu áður, klóraði í bakkann fyrir gestina. Napoli tapaði svo fyrir Catania í dag, 2-1, en Edinson Cavani kom Napoli yfir í leiknum. Gonzalo Bergessio og Giovanni Marchese tryggðu svo Catania sigurinn en Mario Santana, leikmaður Napoli, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins. AC Milan er með sautján stig en Juventus getur komist upp í nítján með sigri á Inter sem er við fallsvæði deildarinnar. Napoli og Catania eru í 5.-6. sæti með fjórtán stig hvort.
Ítalski boltinn Mest lesið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti Uppgjörið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti Fleiri fréttir Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Sjá meira