Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Belgum á Laugardalsvellinum í kvöld í undankeppni EM 2013 en þetta er þriðji leikur íslensku stelpnanna í riðlinum. Íslenska liðið hefur unnið Búlgaríu og Noreg í fyrstu tveimur leikjum sínum og markatalan er 9-1 Íslandi í vil.
KSÍ segir frá því á heimasíðu sinni í dag að stelpurnar hafi æft í Grindavík í gær og að eftir æfingu hafi allar stelpurnar í liðinu verið leystar út með kraftmikilli gjöf, flösku af Lýsi, sem vafalaust á eftir að koma sér vel fyrir leikinn gegn Belgíu í kvöld.
Leikurinn á Laugardalsvelli hefst kl. 19:30 en miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 16:00. Það er einnig hægt að kaupa miða á www.midi.is og kostar þúsund krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir sextán ára og yngri.
Íslenski boltinn