Íslenski boltinn

Fara bæði liðin upp úr 1. deildinni á ÍR-vellinum?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stefán Ragnar Guðlaugsson er fyrirliði Selfyssinga.
Stefán Ragnar Guðlaugsson er fyrirliði Selfyssinga.
Selfyssingar eiga möguleika á því í dag að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deild karla en þá þurfa þeir að ná í stig á ÍR-vellinum í dag. Næstsíðasta umferð 1. deildar karla fer einmitt fram í dag.

Skagamenn eru þegar komnir upp en þeir voru í sömu stöðu og Selfyssingar 16. ágúst síðastliðinn. ÍA náði þá 1-1 jafntefli á móti ÍR-liðinu í Mjóddinni þökk sé jöfnunarmarki Hjartar Júlíusar Hjartarsonar og tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni.

Selfyssingar geta nú endurtekið leikinn á sama stað 25 dögum síðar. Þeir eru með sex stigum meira en Haukar sem eru í 3. sætinu.

Selfoss féll í fyrrahaust úr Pepsi-deildinni en liðið var þá að taka þátt í efstu deild karla í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Logi Ólafsson tók við liðinu eftir tímabilið og er langt kominn með að koma Selfyssingum aftur upp í efstu deild á sínu fyrsta ári við stjórnvölinn.

Leikir í 1. deild karla í dag:

15.00     Torfnesvöllur     BÍ/Bolungarvík - Víkingur Ó.       

16.00     Akranesvöllur     ÍA - KA         

16.00     Gróttuvöllur     Grótta - Leiknir R.         

16.00     Fjölnisvöllur     Fjölnir - HK         

16.00     Ásvellir     Haukar - Þróttur R.         

16.00     ÍR-völlur     ÍR - Selfoss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×