Íslenski boltinn

Yfirlýsing frá Veigari: Vonandi verður þetta öðrum víti til varnaðar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Veigar Páll Gunnarsson.
Veigar Páll Gunnarsson. Mynd/Stefán
Veigar Páll Gunnarsson hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi brottrekstur sinn úr íslenska landsliðinu á laugardaginn var. Veigar harmar að hafa brotið gegn þeim agareglum sem í gildi voru fyrir A-landslið karla.

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, setti Veigar Pál út úr hópnum fyrir Kýpurleikinn vegna þess að Veigar Páll braut reglur landsliðsins með því að neyta áfengis þremur dögum fyrir leik.

Veigar Páll segist hafa orðið á í messunni og að hanni vonast nú til að þetta mál verði vonandi öðrum víti til varnaðar.

Yfirlýsingin frá Veigari:

Ég harma að hafa brotið gegn þeim agareglum sem í gildi voru fyrir A-landslið karla síðastliðinn laugardag.  Hegðun mín var ófagmannleg og óásættanleg og ég bið félaga mína í A- landsliði Íslands afsökunar svo og alla knattspyrnuáhugamenn, stuðningsmenn og samsarfsaðila Knattspyrnusambandsins.

Eftirmál þessa hafa orðið mér dýrkeypt og kostað mig sæti í landsliðinu. Ég sætti mig við orðinn hlut og mun ekki dvelja við þetta mál lengur eða tjá mig frekar um málið. Vonandi verður þetta öðrum víti til varnaðar.

Frá því ég var fyrst valinn til að leika fyrir Íslands hönd, hef ég ávallt litið á það sem heiður og forréttindi að leika með íslenska landsliðinu og ég hef jafnan gefið kost á mér þegar til mín hefur verið leitað. Á því hefur ekki orðið nein breyting þó mér hafi nú orðið á í messunni.

Ég vil nota tækifærið og óska félögum mínum í landsliðinu velfarnaðar í lokaleik undankeppni EM  um leið og ég óska þeim til hamingju með langþráðan sigur gegn Kýpur.

 

Áfram  Ísland !




Fleiri fréttir

Sjá meira


×