Íslenski boltinn

Fjölnir í 3. sætið eftir sigur á KA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Marinó Þór Jakobsson og félagar í Fjölni eru komnir í 3. sæti fyrstu deildarinnar.
Marinó Þór Jakobsson og félagar í Fjölni eru komnir í 3. sæti fyrstu deildarinnar. Mynd/Vilhelm
Fjölnir vann öruggan 3-0 sigur á KA í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Grafarvogi í kvöld.

Gunnar Valur Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins á 27. mínútu og tveimur mínútum síðar jók Bjarni Gunnarsson muninn í 2-0. Bjarni var aftur á ferðinni á 83. mínútu og tryggði heimamönnum stigin þrjú.

Með sigrinum er Fjölnir komið í 3. sæti deildarinnar með 30 stig þegar fjórar umferðir eru óleiknar. KA er í 8. sæti með 20 stig.

Tveir leikir fara fram í deildinni á fimmtudag og fjórir á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×