Íslenski boltinn

Kjúklingalið hjá Skagamönnum í kvöld - þjálfarinn hefur ekki áhyggjur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórður Þórðarson, þjálfari Skagamanna.
Þórður Þórðarson, þjálfari Skagamanna. Mynd/Hag
Skagamenn geta tryggt sér sæti í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir mæta ÍR-ingum upp í Mjódd í 17. umferð 1. deildar karla. ÍA-liðið vantar aðeins eitt stig til þess að komast aftur upp í úrvalsdeildina þar sem að liðið spilaði síðast sumarið 2008.

„Það vantar mjög mikið í liðið hjá okkur," sagði Þórður Þórðarson, þjálfari Skagamanna, en teflir hann fram hálfgerðu kjúklingaliði í kvöld? „Að stórum hluta," sagði Þórður.

Gary Martin er í leikbanni á móti ÍR í kvöld, Arnar Már Guðjónsson meiddist í síðasta leik, Guðmundur Böðvar Guðjónsson ristarbrotnaði í síðasta leik og Heimir Einarsson er meiddur í baki.

„Stefán Þórðarson er líka meiddur í baki en hann er að koma til og verður á bekknum í kvöld. Svo voru fimm strákar úr æfingahópnum okkar að fara í skóla í Bandaríkjunum þar af eru tveir strákar, Andri Geir Alexandersson og Ragnar Leósson, sem eru búnir að vera í 18 manna hópnum í allt sumar. Þetta er svolítið mikil blóðtaka á stuttum tíma," segir Þórður.

„Við erum með stóran og breiðan hóp og ég treysti þessum strákum sem koma inn alveg hundrað prósent. Við erum alveg slakir og þetta er allt í góðu," segir Þórður. ÍA tapaði sínum fyrsta leik í 1. deildinni í sumar þegar þeir fengu Guðjón Þórðarson og lærisveina hans í BÍ/Bolungarvík í heimsókn á föstudagskvöldið.

„Við ætluðum að setja punktinn yfir i-ið á föstudaginn en það tókst ekki. Við stefnum bara á að gera það í kvöld. Við höfum sex leiki til að ná í þetta eina stig svo framarlega sem hin liðin vinna allt," segir Þórður.

„Þetta er búið að vera stórkostlegt sumar. Það sýnir styrkinn á hópnum hjá okkur að við getum ráðið við það að missa tíu menn út úr hópnum á tíu dögum. Við erum samt með fínt lið þannig að við erum hvergi bangnir fyrir kvöldið," sagði Þórður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×