Íslenski boltinn

Fimm leikmenn búnir að draga sig út úr landsliðshópnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson fer til Ungverjalands.
Matthías Vilhjálmsson fer til Ungverjalands. Mynd/Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur þurft að kalla á fjóra menn inn í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Ungverjum á miðvikudag.

Gylfi Þór Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Kolbeinn Sigþórsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson og Hannes Þór Halldórsson hafa allir dregið sig úr hópnum vegna meiðsla.

Í þeirra stað koma Matthías Vilhjálmsson, Arnór Smárason, Hjörtur Logi Valgarðsson og Elfar Freyr Helgason.

Leikurinn fer fram á Ferenc Puskas vellinum í Búdapest og hefst kl. 17:45 að íslenskum tíma.  Þetta er tíunda viðureign þjóðanna og hafa Ungverjar haft betur í sex leikjum en Íslendingar í þremur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×