Íslenski boltinn

Þrumufleygur Doninger tryggði Skagamönnum sigur

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamenn eru enn taplausir eftir 14 leiki í næst efstu deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn liði Selfoss á Akransvelli í kvöld. Mark Doninger tryggði ÍA sigur með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu á 89. mínútu en Skagamenn léku einum færri í um 80 mínútur þar sem að Heimir Einarsson fyrirliði  var rekinn af velli eftir um 13 mínútur.

Gary Martin kom ÍA yfir á 20. mínútu en Viðar Örn Kjartansson jafnaði metin fyrir Selfoss  á 36. mínútu.

Aðstæður til þess að spila fótbolta voru slæmar. Gríðarlegur vindur og úrhellisrigning . Og Akranesvöllur var því rennandi blautur og erfiður viðureignar

Boltavakt Fréttablaðsins og visir.is  var með beina textalýsingu frá leiknum. Skagamenn eru sem fyrr í efsta sæti eftir 14 umferðir með 40 stig en liðið hefur enn ekki tapað leik á tímabilinu, 13 sigrar og 1 jafntefli. Selfoss er í öðru sæti með 28 stig, 9 sigurleiki, 1 jafntefli og 4 tapleiki.


Tengdar fréttir

Doninger: Alveg sama þótt Gary öskri á mig

"Ég hafði það á tilfinningunni að ég myndi hitta boltann vel og skora. Þess vegna tók ég þessa aukaspyrnu. Ég var alveg viss um að hitta á markið og það er frábært að skora sigurmark með þessum hætti. Mér var alveg sama þótt Gary (Martin) væri að öskra á mig en hann vildi að sjálfsögðu taka þetta sjálfur,“ sagði Englendingurinn Mark Doninger leikmaður ÍA eftir að hann tryggði liðinu 2-1 sigur með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 90. mínútu gegn liði Selfoss í kvöld á Akranesvelli.

Þórður Þórðarson: Ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út

„Við erum ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út,“ sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 2-1 sigur liðsins gegn liði Selfoss í toppslagnum í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Skagamenn voru einum færri í 80 mínútur þar sem fyrirliðinn Heimir Einarsson fékk rautt spjald á 13. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×