Íslenski boltinn

Umfjöllun: Þróttur og BÍ/Bolungarvík skildu jöfn

Stefán Árni Pálsson á Valbjarnarvelli skrifar
Páll Einarsson, þjálfari Þróttar. Mynd./ Valli
Páll Einarsson, þjálfari Þróttar. Mynd./ Valli
Þróttur og BÍ/Bolungarvík skildu jöfn, 2-2, í 1.deild karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Valbjarnarvelli. Gestirnir að vestan komust tvisvar yfir í leiknum en Þróttarar gáfust aldrei upp og jöfnuðu metin.



Þróttarar voru ívið sterkari aðilinn í byrjun leiks og gestirnir lágu aftarlega á vellinum. BÍ/Bolungarvík skoraði fyrsta mark leiksins eftir korters leik þegar Hafþór Atli Agnarsson klíndi boltanum í netið af um 30 metra færi alveg óverjandi fyrir Þórð Ingason í marki gestanna.



Heimamenn voru ekki lengi að jafna metinn en aðeins fimm mínútum síðar skallaði Dusan Ivkovic boltann í netið eftir virkilega fína fyrirgjöf frá Jens Sævarssyni.  

Þróttarar tóku öll völd á vellinum næstu mínútur og voru óheppnir að ná ekki inn marki. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks komust gestirnir í 2-1 sem var alveg þvert gegn gangi leiksins.



Zoran Stamenic átti skalla sem stefndi í áttina að marki Þróttara en Trausti Sigurbjörnsson, markvörður Þróttara, varði boltann út í teiginn, þar var Atli Guðjónsson mættur til að hirða frákastið og skoraði auðveldlega.



Staðan var því 2-1í hálfleik fyrir gestina eftir ágætan fyrri hálfleik.

Þróttarar mættu grimmir til síðari hálfleiksins og voru greinilega staðráðnir í því að jafna leikinn eftir að hafa fengið á sig þetta klaufamark.



Heimamenn voru með yfirhöndina nánast allan síðari hálfleikinn og því kom það engum á óvart þegar jöfnunarmarkið kom. Sveinbjörn Jónasson, leikmaður Þróttar, náði að skora virkilega flott mark þegar um tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Sveinbjörn skaut boltanum fyrir utan vítateig gestanna með bylmingsskoti eftir að varnarmaður gestanna náði ekki að bægja hættunni frá.



Þróttarar voru sterkari aðilinn síðustu mínúturnar en náðu ekki að skapa sér hættuleg færi og því var jafntefli niðurstaðan.



Það var greinilegt að leikurinn gegn Blikum á fimmtudaginn satt í BÍ/Bolungarvík en leikmenn voru orðnir þreyttir og það sást á leik liðsins.

Þróttur  2 – 2 BÍ/Bolungarvík



0-1 Hafþór Atli Agnarsson (15.)

1-1 Dusan Ivkovic (21.)

1-2 Atli Guðjónsson (43.)

2-2 Sveinbjörn Jónasson  (70.)

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×