Fjölnismenn aftur á sigurbraut eftir stórsigur á KA fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2011 20:14
KA-mönnum líður greinilega ekkert alltof vel á Þórsvellinum því þeir steinlágu 1-4 á "heimavelli" á móti Fjölni í 6. umferð 1. deildar karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Fjölnismanna síðan í 2. umferð en þeir komust upp í 3. sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. Viðar Guðjónsson, Illugi Þór Gunnarsson (víti) og Kristinn Freyr Sigurðsson komu Fjölni í 3-0 eftir aðeins 36 mínútur og þannig var staðan í hálfleik. Illugi Þór skoraði síðan úr annarri vítaspyrnu í seinni hálfleik en KA-maðurinn Sigurjón Fannar Sigurðsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið. KA tókst engu að síður að minnka muninn manni færri þegar Guðmundur Óli Steingrímsson skoraði undir lok leiksins. Fjölnir vann tvo fyrstu tvo leiki sína en hafði síðan aðeins náð í eitt stig út úr síðustu þremur leikjum sínum. Bæði liðin áttu það sameiginlegt að hafa gengið illa að landa sigrum í síðustu leikjum. KA-liðið náði í sjö stig í fyrstu þremur leikjum sínum en hefur síðan tapað þremur leikjum í röð með markatölunni 1-7. KA varð að spila þennan leik á Þórsvellinum þar sem að heimavöllur liðsins á Dalsbrautinni er mjög illa farinn. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Fleiri fréttir David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Sjá meira