Dirk Nowitzki sleit sin í fingri í nótt - hefur ekki áhyggjur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2011 13:30 Dirk Nowitzki. Mynd/AP
Dirk Nowitzki, lykilmaður Dallas Mavericks, varð ekki aðeins að sætta sig við tap í fyrsta úrslitaleiknum á móti Miami Heat í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt því hann varð líka fyrir því óláni að slíta sin í fingri í leiknum. Nowitzki meiddist reyndar ekki á skothendinni en þarf að spila með spelku á fingrinum það sem eftir lifir lokaúrslitanna. Nowitzki meiddist við það að slá boltann úr höndum Chris Bosh en hann fékk þá dæmda á sig villu sem sjónvarpsupptökur sýndu að var vafasöm. Nowitzki mótmælti fyrst villunni en leit síðan niður á höndina á sér. „Ég gat ekki rétt úr fingrinum. Þetta var algjör óheppni. Ég þarf að vera með spelku út úrslitakeppnina en þetta verður í góðu lagi," sagði Nowitzki. LeBron James hefur heldur ekki áhyggjur af þessu. „Hann er rétthentur er það ekki. Þetta hefur engin áhrif á hann og hann verður áfram frábær. Hann er Dirk ennþá," sagði LeBron James. Nowitzki skoraði 27 stig í leiknum en hann hitti aðeins úr 7 af 18 skotum sínum. Það sem meira er að í seinni hálfleik nýtti hann aðeins 3 af 9 skotum og hann gat ekki svarað stórleik þeirra LeBron James og Dwyane Wade á lokakaflanum.
NBA Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Sjá meira