Kannanirnar ofmátu fylgi Besta flokksins 31. maí 2010 03:30
Skoðanakönnun Capacent Gallup sem birt var í Ríkissjónvarpinu á föstudag komst næst úrslitum sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík af þeim könnunum sem birtar voru opinberlega dagana fyrir kosningarnar. Þrjár kannanir voru birtar frá miðvikudegi fram á föstudag. Allar ofmátu fylgi Besta flokksins og vanmátu fylgi Sjálfstæðisflokksins, og allar voru ónákvæmari en kannanir fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Könnun Capacent Gallup fyrir Ríkisútvarpið, sem birt var á föstudag, komst í heildina séð næst úrslitum borgarstjórnarkosninganna. Að meðaltali munaði 1,7 prósentustigum á því fylgi sem könnunin mældi hjá hverjum flokki og því sem kom upp úr kjörkössunum. Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem birt var á fimmtudag, var heldur fjær úrslitunum. Að meðaltali munaði 2,1 prósentustigi á fylgi hvers flokks og kjörfylgi. Morgunblaðið birti á miðvikudag könnun sem Miðlun vann fyrir blaðið. Sú könnun var fjærst úrslitunum, og munaði að meðaltali 2,5 prósentustigum á fylgi hvers flokks í könnuninni og niðurstöðunum á kjördag. Í öllum könnununum munaði talsverðu á mældu og raunverulegu fylgi Besta flokksins og Sjálfstæðisflokksins, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Munurinn á nákvæmni allra kannananna er meiri en fyrir kosningarnar 2006. Þá munaði að meðaltali 1,3 prósentustigum hjá Gallup, 1,8 prósentustigi hjá Fréttablaðinu og 1,9 prósentum hjá Félagsvísindastofnun. brjann@frettabladid.is
Kosningar 2010 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira