Rannsókn sérstaks á sömu slóðum og New York málið 16. nóvember 2010 15:21
Víðtækar aðgerðir og rannsókn sérstaks saksóknara í dag benda til þess að hann sé að róa á sömu mið og slitastjórn Glitnis í málaferlum sínum gegn svokölluðum sjömenningum í New York. Þegar nöfnin sem kom fram í tilkynningu sérstaks saksóknara eru borin saman við nöfnin sem komið hafa fram í málaferlunum í New York eru þau hin sömu í mörgum tilvika. Hér er átt við íslensku fyrirtækin/félögin FL Group, fasteignafélagið Stoðir, FS-38 ehf.og Stím auk danska fasteignafélagsins Keops. Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar Glitnis segir að frá því að slitastjórnin tók til starfa hafi hún reglulega sent gögn til sérstaks saksóknara þar sem talið var að um brot á hegningarlögum væri að ræða. Hinsvegar hafi hún ekki haft upplýsingar um aðgerðir sérstaks saksóknara í dag fyrr en hún heyrði um þær í fréttum. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur slitastjórnin stefnt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og sex öðrum fyrir dómstól í New York og krafist 256 milljarða króna skaðabóta. Telur slitastjórnin að sjömenningarnir hafi tekið fé úr bankanum og nýtt það í þágu sína og fyrirtækja sinna. Fyrirtækin sem greint er frá í stefnunni eru m.a. FL Group, Stoðir, FS-38 ehf. og Stím auk Keops. Málið hefur vakið athygli í erlendum fjölmiðlum og má nefna að danskir fjölmiðlar fjölluðu um það s.l. vor vegna þess að danska fasteignafélagið Keops kemur við sögu. Svo dæmi sé tekið var fyrirsögnin á business.dk um málið „Keops keypt fyrir stolið fé".
Stím málið Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira