Gylfi Þór: Vissi að hann færi í samúel Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Edinborg skrifar 11. október 2010 22:23 Gylfi var frábær í kvöld.
Blaðamaður Vísis hitti skælbrosandi Gylfa Þór Sigurðsson eftir sigurinn glæsilega á Skotum í Edinborg í kvöld. Gylfi tryggði sigurinn með tveimur mörkum sem lengi verða í minni höfð. Tveir glæsilegir þrumufleygar sem kom Íslandi í hóp átta bestu knattspyrnuþjóða í Evrópu í flokki U-21 landsliða. „Hægri fóturinn hefur það bara ansi gott,“ sagði hann brosandi. „Það er smá þreyta í honum en mér er alveg sama. Þetta var bara fáránlegt. Ég vissi strax að hann færi beint upp í „samúel“. Ég hitti hann svo vel - ég sá að hann væri að fara beint áfram og upp í skeytin,“ sagði hann um seinna markið. „Jói [Jóhann Berg] skoraði fínt mark í fyrri leiknum og var eitthvað að rífa sig eftir hann. Ég reyndi því að gera betur í dag. Ég var ekki alveg nógu sáttur við fyrsta markið og því vildi ég gera betur í því seinna. Ég held að ég hafi unnið hann í dag.“ „En þetta var langur leikur. Við byrjuðum ekki nógu vel og vorum á hælunum. Þeir sóttu meira en við bjuggumst við. Við vorum seinir í alla bolta og vorum ekki nógu nálægt þeim. Við reyndum að rífa okkur upp í seinni hálfleik og fara að spila okkar bolta. Það gekk ágætlega og við náðum að setja tvö mörk á þá.“ „Arnar Darri [Pétursson, markvörður] reyndi svo að gera þetta spennandi. Ég veit ekki hvað hann var að gera,“ sagði Gylfi og hló. „En við náðum að vinna og það er það sem skiptir máli. Þetta er frábært og gerist ekki betra. Tilfinningin er ólýsanleg og við ætlum að njóta hennar, alla vega í kvöld.“
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Fótbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira