Íslensku U-17 stelpurnar í efsta styrkleikaflokki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. október 2010 21:15 Þorlákur Árnason er þjálfari U-17 liðs kvenna.
Íslenska U-17 landslið stúlkna verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í milliriðla í undankeppni EM 2011. Íslenska liðið náði frábærum árangri í riðlakeppninni þar sem stúlkurnar unnu alla sína þrjá leiki með miklum mun. Liðið vann lið Ítalíu, Litháen og Búlgaríu og skoraði í þeim leikjum samtals 29 mörk en fékk aðeins eitt á sig. Sá árangur fleytti liðinu í efsta styrkleikaflokk fyrir milliriðlakeppnina en dregið verður þann 16. nóvember næstkomandi. Ísland er í efsta styrkleikaflokki ásamt Þýskalandi, Spáni og Sviss. Þjóðverjar þurftu ekki að taka þátt í undanriðlinum en Spánverjar eru ríkjandi meistarar í þessum aldursflokki. Sextán lið keppa í fjórum milliriðlum. Efsta liðið í hverjum milliriðli kemst í lokakeppnina sem fer fram í Nyon í Sviss á næsta ári. Þar sem aðeins fjögur lið komast í lokakeppnina fara liðin beint í undanúrslit og sigurvegarar þeirra leikja í sjálfan úrslitaleikinn.Styrkleikaflokkarnir: 1. flokkur: Þýskaland, Ísland, Spánn, Sviss. 2. flokkur: Tékkland, Danmörk, Svíþjóð, Skotland. 3. flokkur: Belgía, Finnland, England, Wales. 4. flokkur: Rússland, Pólland, Frakkland, Ítalía. Þá verður einnig dregið í undanriðla fyrir EM 2012 í þessum aldursflokki á sama tíma. Þar er Ísland í öðrum styrkleikaflokki af þremur.
Íslenski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Sjá meira