Íslenski boltinn

Hægt að gerast heiðursáskrifandi að bók um sögu bikarkeppni KSÍ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar urðu bikarmeistarar í karla og kvennaflokki á síðasta tímabili.
KR-ingar urðu bikarmeistarar í karla og kvennaflokki á síðasta tímabili. Mynd/Daníel

Knattspyrnusamband Íslands gefur í ár út bók um sögu bikarkeppni karla og kvenna í tilefni af fimmtugasta bikarúrslitaleik KSÍ. Nú býðst knattspyrnuáhugamönnum, aðildarfélögum, sveitarfélögum og fleirum að kaupa bókina í heiðursáskrift og gá um leið nafn sitt birt í nafnalisti heiðursáskriftar sem kemur fram í lok bókar.

Stjórn KSÍ fékk Skapta Hallgrímsson blaðamann til þess að skrá sögu bikarkeppninnar. Bókin verður um 300 blaðsíður auk þess sem DVD-diskur með myndefni úr keppninni og mörkum úr úrslitaleikjum fylgir bókinni.

Á heimasíðu KSÍ koma fram upplýsingar um hvernig menn geta orðið heiðursáskrifendur og komist í Tabula gratulatoria í lok þessarar veglegu bókar. Hér má finna upplýsingar á heimasíðu KSÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×