Markasúpa á Camp Nou í kvöld? - tvö markahæstu liðin mætast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2009 15:00 Eiður Smári hefur tekið þátt i því að slá út Bayern. Mynd/GettyImages
Þótt að margir bíði spenntir eftir leik Liverpool og Chelsea í 8 liða úrslitum meistaradeildarinnar í kvöld þá er bendir allt til þess að hinn leikur kvöldsins verði mikil skemmtun með fullt af mörkum þegar tvö markahæstu lið Meistaradeildarinnar mætast. Barcelona tekur á móti þýska liðinu Bayern Munchen en bæði lið hafa skorað 24 mörk í 8 leikjum í Meistaradeildinni á þessu tímabili eða 3 mörk að meðaltali í leik. Samkvæmt því ættu þau að bjóða upp á sex marka leik í kvöld. Barcelona er búið að skora 15 mörk í fimm heimaleikjum í Meistaradeildinni í vetur þar af fimm þeirra þegar liðið vann Lyon, 5-2, í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bayern Munchen hefur skorað í fjórtán útileikjum í röð í Meistaradeildinni og vann portúgalska liðið Sporting Lissabon samanlagt 12-1 í 16 liða úrslitunum. Barcelona hefur aldrei unnið Bayern í Evrópuleik en á heimasíðu liðsins er þó rifjað upp að einn leikmaður liðsins hafi reynslu af því að slá út Munchen-liðið því Eiður Smári Guðjohnsen lék með Chelsea sem sló út Bayern í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar 2004-2005. Eiður Smári Guðjohnsen hefur tekið þátt í þremur leikjum í Meistaradeildinni og verið inn á í samtals 115 mínútur. Hann á enn eftir að skora en tíu leikmenn Barcelona hafa náð að skora í Meistaradeildinniá þessu tímabili.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Sjá meira