Fótbolti

Fimm íslenskir eftirlitsmenn á Evrópuleikjum í vikunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Egill Már Markússon er eini eftirlitsmaðurinn í Meistaradeildinni.
Egill Már Markússon er eini eftirlitsmaðurinn í Meistaradeildinni. Mynd/E. Stefán
Það er nóg af leikjum í undankeppnum Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar UEFA í vikunni og það eru ekki bara íslensku liðin sem verða á ferðinni. Á heimasíðu Knattspyrnusambandsins er farið yfir verkefni íslenskra eftirlitsmanna í vikunni.

Fimm íslenskir eftirlitsmenn verða á leikjum þessum keppnum einn er dómaraeftirlitsmaður í Meistaradeild Evrópu í kvöld og á fimmtudag verða svo þrír dómaraeftirlitsmenn að störfum í Evrópudeild UEFA og einn eftirlitsmaður.

Egill Már Markússon verður dómaraeftirlitsmaður í Wales í kvöld þegar að Rhyl FC og FK Partizan mætast í Meistaradeild Evrópu.

Sigurður Hannesson verður dómaraeftirlitsmaður í Sviss þar sem FC Basel og FC Santa Coloma eigast við á fimmtudaginn.

Ingi Jónsson verður dómaraeftirlitsmaður í Lúxemborg á leik FC Differdange 03 og HNK Rijeka á fimmtudaginn.

Eyjólfur Ólafsson verður dómaraeftirlitsmaður í Skotlandi á leik Falkirk og Vaduz á fimmtudaginn.

Guðmundur Pétursson verður eftirlitsmaður UEFA í Litháen á leik FK Vetra og HJK Helsinki á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×