Engin niðurstaða í morðrannsókn Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. maí 2009 09:38
Engin niðurstaða hefur fengist í rannsókn á morði íslenskrar stúlku í Dóminíska Lýðveldinu í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var myrt í september í fyrra á herbergi á hóteli þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri. Hún var stungin með hníf og lamin í höfuðið með barefli. Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra sagði í samtali við fréttastofu í morgun að engin niðurstaða hefði fengist í rannsókn á morði stúlkunnar. DV hefur eftir Georgi Páli Kristinssyni, föður Hrafnhildar, að formlegri rannsókn á morðinu væri hætt án þess að morðinginn hafi fundist. Þrír hafi þó enn réttarstöðu grunaðra samkvæmt lögregluskýrslu sem hann fékk í hendurnar á fimmtudag. Þær upplýsingar fengust frá utanríkisráðuneytinu að skýrsla um rannsóknina hefði borist í gær. Þrátt fyrir að formlegri rannsókn væri lokið verður málinu haldið opnu ef að frekari vísbendingar skyldu berast. Ræðismaður Íslands í Dóminíska lýðveldinu, sem hefði verið í vikulegu sambandi við lögregluna þar í landi, myndi áfram fylgjast með gangi mála. Fréttastofa hefur ekki náð tali af föður Hrafnhildar.
Íslensk kona myrt í Dóminíska lýðveldinu Dóminíska lýðveldið Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Innlent Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Innlent „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Innlent Engar upplýsingar fást um tengsl konunnar við barnið Innlent Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Innlent „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Innlent Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Innlent Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Leggja til að stofna þjóðgarð í Dalabyggð Ástand skapaðist vegna skorts á armböndum Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Ógnaði barnsmóður sinni með haglabyssu Engar upplýsingar fást um tengsl konunnar við barnið Bein útsending: Frambjóðendur ræða málefni fatlaðs fólks Fjörutíu prósent kjósenda Miðflokks vilja Trump „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Leikskólinn Mánagarður opinn á ný Bein útsending: Loftslagsmál rædd á Umhverfisþingi Frambjóðendur ræða áfengis- og vímuefnamál Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Sjá meira