NBA í nótt: Portland þurfti tvær framlengingar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. janúar 2008 10:08 Jarret Jack (1) og Martell Webster fagna sigrinum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Portland Trail Blazers vann sinn fimmtánda sigur í síðustu sextán leikjum sínum þegar liðið vann Chicago í nótt í tvíframlengdum leik, 115-109. Portland var reyndar fjórtán stigum undir í þriðja leikhluta en náði aftur forystunni í upphafi þess fjórða. Ben Gordon skoraði síðustu körfu venjulegs leiktíma og jafnaði þar með metin fyrir Chicago, 88-88. Staðan var jöfn eftir fyrri framlenginguna, 102-102, en það var þriggja stiga leikflétta Jarrett Jack undir lok síðari framlengingarinnar sem tryggði Portland sigurinn. Brandon Roy var stigahæstur hjá Portland með 25 stig og ellefu stoðsendingar en Travis Outlaw var með 21 stig í leiknum. Gordon var með flest stig hjá Chicago með 32 stig en Joe Smith var með 31 stig og ellefu fráköst. Luol Deng gat ekkert spilað í síðari hálfleik vegna meiðsla og skoraði aðeins tvö stig í leiknum. Phoenix Suns vann góðan sigur á Seattle, 104-96, eftir að hafa verið 20 stigum undir í fyrsta leikhluta. Amare Stoudemire var með 34 stig og ellefu fráköst. Þá vann Denver Nuggets dýrmætan heimasigur á San Antonio, 80-77. Allen Iverson var með 29 stig fyrir Denver en hjá San Antonio voru Tony Parker og Tim Duncan stigahæstir með 20 stig. Duncan var þar að auki með fjórtán fráköst.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Keflavík - FH | Erfið heimsókn til Keflavíkur. Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira