Ekki lengur freyðandi sala á kampavíni 23. desember 2008 12:52
Salan á kampavíni er ekki lengur freyðandi. Fjármálakreppan í heiminum kemur við kaunin á kampavínsframleiðendum eins og flestum öðrum. Bara í október var salan 16,7% minni en í sama mánuði í fyrra. Í umfjöllun um málið á vefsíðunni E24.no segir að sala á kampavíni hafi aukist ár frá ári síðan um aldamótin. Og hún rauk upp í verðbréfabólunni síðustu tvö árin. Nú eru aðrir tímar. Patrice Noyelle forstjóri hins 160 ára gamla kampavínsframleiðenda Pol Roger segir að fjármálakreppan og samdrátturinn sökum hennar komi töluvert við kaunin. Og Laurent-Perrier einn af risunum í kampavínshéraðinu Epernay segir að salan hjá fyrirtækinu hafi minnkað um 35% á seinni helmingi ársins miðað við fyrri helminginn. Þótt árið 2008 verði ekki nærri eins gott og 2007 er Noyelle þó hóflega bjartsýnn á framtíðina. Að vísu muni kampavín ekki hækka í verði á næstunni eins og það hefur gert hvert einasta ár síðasta áratuginn en það selst alltaf. Noyelle vitnar í orð Winston Churchill sem sagði um kampavín: "Ég á það skilið þegar ég vinn, ég þarfnast þess þegar ég tapa."
Mest lesið Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf