Fótbolti

Hodgson ráðinn til Inter

NordicPhotos/GettyImages

Enski knattspyrnuþjálfarinn Roy Hodgson sem í dag sagði af sér sem landsliðsþjálfari Finna, hefur ráðið sig í vinnu sem aðstoðarmaður Massimo Moratti, forseta Inter á Ítalíu.

Hodgson þjálfaði tvö lið á Ítalíu á síðasta áratug, en hann útilokar ekki að taka við þjálfun annars landslið ef gott tilboð bærist.

"Ef annað landslið vill fá mig verður það annars vegar að hafa mjög hraðar hendur og hinsvegar að sannfæra forseta Inter um að sleppa mér áður en hann klárar að ganga frá því að ráða mig," sagði Hodgson á blaðamannafundi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×