Enginn heimsendir ef við sitjum eftir 6. nóvember 2007 10:00 NordicPhotos/GettyImages
Varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool segir að það yrði enginn heimsendir fyrir félagið ef svo færi að það sæti eftir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liverpool verður að vinna leik sinn við Besiktas í A-riðli í kvöld til að eiga möguleika á að fara áfram. Ekki nóg með það, heldur þurfa þeir rauðu helst að vinna Porto og Marseille líka í síðustu tveimur leikjunum. "Auðvitað viljum við vinna alla þrjá leikina, en við skulum byrja á því að reyna að vinna Besiktas fyrst áður en við förum að spá í síðasta leikinn í Marseille. Við eigum tvö heimaleiki í röð núna og þar munu stuðningsmenn okkar spila stórt hlutverk. Ef okkur tekst að vinna þá, skulum við sjá til hvað við getum gert í Frakklandi," sagði Carragher. Hann hefur ekki stórar áhyggjur af framhaldinu. "Við erum ekkert að velta okkur upp úr því hvort það yrði stórslys ef við komumst ekki áfram. Þetta er bara fótbolti. Ef við komumst ekki áfram í Meistaradeildinni myndi það þýða að við færum inn í UEFA keppnina fullir sjálfstrausts. Við viljum auðvitað helst vera í Meistaradeildinni á móti þeim bestu, en við höfum gert það undanfarin ár með því að komast alla leið í úrslitaleikinn. Það yrðu auðvitað vonbrigði að komast ekki áfram í Meistaradeildinni - en ekkert stórslys. Við eigum ennþá stórt tímabil fyrir höndum," sagði varnarjaxlinn.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sjá meira