Juventus ekki á eftir Lampard 3. júlí 2007 14:15 Ranieri er ekki að reyna að kaupa Frank Lampard til Juve NordicPhotos/GettyImages
Claudio Ranieri segir Juventus ekki vera á höttunum eftir miðjumanninum Frank Lampard hjá Chelsea eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Hann segir að þó Lampard sé frábær leikmaður, vanti Juventus aðeins miðvörð í leikmannahóp sinn fyrir átökin á næstu leiktíð. Framtíð Lampard þykir óráðin eftir að hann neitaði að skrifa undir nýjan samning sem honum var boðinn hjá Chelsea og var hann í kjölfarið orðaður við Barcelona og Juventus. Það var einmitt Claudio Ranieri, þjálfari Juventus, sem keypti Lampard til Chelsea þegar hann stýrði liðinu á sínum tíma. "Frank er frábær leikmaður og ég veit það betur en flestir, en það eina sem okkur vantar í hópinn fyrir næstu leiktíð er miðvörður," sagði Ranieri sem keypti Lampard frá West Ham fyrir 11 milljónir árið 2001. "Margir sögðu að Frank væri ekki peninganna virði þegar ég keypti hann á sínum tíma, en hann lagði hart að sér og varð einn besti miðjumaður heims. Ég var gríðarlega stoltur af honum og við áttum frábært samstarf," sagði Ranieri. Hann er ekki á flæðiskeri staddur með miðjumenn hjá Juventus þar sem hann hefur þá Pavel Nedved, Mauro Camoranesi og Christiano Zanetti og fékk þar að auki þá Tiago frá Lyon og Sergio Bernardo Almiron frá Empoli í sumar.
Ítalski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjá meira