Ofsaakstur endaði á Búllunni 22. júní 2007 07:06 MYND/Pjetur
Þrennt var flutt á slysadeild eftir að bíll á ofsahraða hafnaði á Hamborgarabúllu Tómasar um tvöleytið í nótt. Ökumaður bílsins var í kappakstri við annan bíl á Geirsgötunni og ók í vesturátt en náði ekki beygjunni við Hamborgarabúllu Tómasar og flaug inn á bílastæðið við Búlluna. Þar lenti hann framan á kyrrsstæðum bíl og kastaðist þaðan í Búlluna sjálfa. Lögreglumenn sem voru á ferðinni við höfnina heyrðu þegar bíllinn skall á húsinu og kölluðu til aðstoð. Þurftu slökkviliðsmenn að beita klippum til að losa ökumanninn, sem er 18 ára, úr bílnum og tók það nokkurn tíma. Hann og stúlka sem var farþegi í bílnum voru lögð inn á gjörgæsludeild til eftirlits en þau munu ekki vera í lífshættu. Piltur sem var farþegi í bílnum fór í aðgerð vegna meiðsla sinna í nótt. Ekki liggur fyrir hversu hratt ungi maðurinn ók þegar slysið varð en lögregla segir hann þó hafa verið á ofsahraða. Lögregla lokaði veginum í nokkurn tíma vegna slyssins með því að leggja lögreglubíl þvert á veginn. Einn ökumaður lét hins vegar ekki segjast og ók fram hjá honum og stöðvaði lögregla hann. Reyndist hann vera ölvaður.
Innlent Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent „Svarta ekkjan“ fannst látin Erlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Sjá meira