Lucy in the Sky er fundin Óli Tynes skrifar 1. júní 2007 13:15 Kápan á Sgt. Peppers
Bresk kona sagði í dag að hún hafi verið innblástur Johns Lennons að laginu Lucy in the Sky with Diamonds. Margir aðdáendur Bítlanna hafa talið að nafnið hafi verið lítt dulin lofgjörð um ofskynjunarlyfið LSD. Vegna þess var skífan ritskoðuð í mörgum íhaldssamari löndum og laginu um Lucy sleppt. Það var t.d. gert víða í Asíu. Hin 43 ára gamla Lucy O'Donnell sagði hinsvegar í viðtali á BBC að hún hafi verið bekkjarsystir Julians Lennons árið 1967. Þau hafi teiknað myndir hvort af öðru. Þann dag hafi Lennon komið með bílstjóranum sem sótti Julian í skólann. Julian hafi sýnt föður sínum myndina og sagt; "Þetta er Lucy in the Sky with Diamonds." Lucy segir að þau Julian hafi verið góðir vinir og leikið sér saman. Meðal annars skvett málningu hvort á annað í teiknitímum, kennaranum til mikils hryllings. Lucy in the Sky with Diamonds var á safndiskinum "Sgt. Peppers Lonly Hearts Club Band," sem á fertugsafmæli í dag. Hvorki Julian né aðrir tengdir Bítlunum hafa enn tjáð sig um fullyrðingar Lucy O'Donnell.
Erlent Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira