New Jersey mætir Cleveland 5. maí 2007 03:55 Richard Jefferson skorar hér sigrukörfuna gegn Toronto í nótt NordicPhotos/GettyImages
Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. Jefferson var stigahæstur hjá New Jersey með 24 stig, Vince Carter skoraði 21 stig en hitti aðeins úr 6 af 19 skotum sínum utan af velli. Jason Kidd skoraði 18 stig, gaf 15 stoðsendingar og hirti 8 fráköst - og var með þrefalda tvennu að meðaltali í einvíginu. Þetta er í annað skipti sem Kidd nær þessum áfanga í seríu í úrslitakeppninni, en aðeins Magic Johnson og Wilt Chamberlain hafa leikið það eftir. Kidd skoraði 14 stig, gaf 13,2 stoðsendingar og hirti 10 fráköst að meðaltali í leik í einvíginu. Chris Bosh skoraði 24 stig, hirti 7 fráköst og gaf 9 stoðsendingar hjá Toronto, en olli annars vonbrigðum með frammistöðu sinni í einvíginu. TJ Ford skoraði 19 stig af varamannabekknum hjá Toronto og Andrea Bargnani skoraði 17 stig. Toronto liðið var óheppið með meiðsli fyrir og á meðan einvíginu stóð, en ljóst er að framtíð liðsins er björt og fæstir reiknuðu með því að liðið kæmist í úrslitakeppnina í vor. Nú er því ljóst að það verða annars vegar Detroit og Chicago og hinsvegar Cleveland og New Jersey sem mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Fyrsti leikurinn hjá Cleveland og New Jersey verður á sunnudaginn en fyrsti leikur Detroit og Chicago er í kvöld - laugardagskvöld - og verður hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00.
NBA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Sjá meira