Ótrúleg frammistaða Ciudad í síðari hálfleik 24. febrúar 2007 18:00 Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk í leiknum í dag. MYND/Pjetur
Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk, öll úr vítaköstum, þegar Ciudad Real bar sigurorð af Portland San Antonio, 26-21, í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Það var stórkostleg spilamennska í síðari hálfleik sem tryggði Ciudad sigur í leiknum en liðið var fimm mörkum undir í hálfleik, 14-9. Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar. Viðsnúningurinn í leiknum í dag var með ólíkindum en leikmenn Portland léku við hvern sinn fingur í fyrri hálfleik og komu heimamönnum í Ciudad í opna skjöldu með ákveðnum leik. Liðið hafði 14-9 forystu í hálfleik en þessi lið áttust einmitt við í úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð. Evrópumeistarar Ciudad komu hins vegar með allt annað hugarfar inn í síðari hálfleik og var liðið búið að jafna metin í 14-14 eftir aðeins nokkrar mínútur. Gestirnir skoruðu sitt fyrsta mark í síðari hálfleik eftir rúmlega 10 mínútna leik en varnarleikur heimamanna var hreint stórkostlegur og engar glufur á vörninni að finna. Smátt og smátt bættist við forskot heimamanna og 26-21 sigur varð að lokum staðreynd. Kasper Hvidt var ótrúlegur í marki Portland og kom í veg fyrir stærra tap. Hann varði 26 skot í leiknum, mörg hver úr algjörum dauðafærum. Liðin eigast við að nýju um næstu helgi, þá á heimavelli Portland. Fyrr í dag höfðu Sigfús Sigurðsson og félagar hans í Ademar Leon unnið Bjerringbro-Silkeborg, 36-30, á útivelli í Evrópukeppni bikarhafa. Liðið er því afar góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna eftir viku.
Erlendar Handbolti Íþróttir Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Fleiri fréttir „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri Sjá meira