Bíó og sjónvarp

Alvöru aðdáendur sjá báðar

Jakob Þór Einarsson og Helga Braga við upptökur á íslensku útgáfu Simpsons-myndarinnar. Helga Braga fer með hlutverk inúítakonu.Fréttablaðið/Anton
Jakob Þór Einarsson og Helga Braga við upptökur á íslensku útgáfu Simpsons-myndarinnar. Helga Braga fer með hlutverk inúítakonu.Fréttablaðið/Anton

„Það er nú alltaf svolítil tilhlökkun í manni fyrir frumsýningu en maður er orðinn svo sjóaður að maður lætur það ekki á sig fá lengur,“ segir Jakob Þór Einarsson sem leikstýrir íslensku talsetningunni á Simpsons-myndinni. Þó Jakob sé reyndur maður veit hann sem er að til eru svo harðir aðdáendur gulu fjölskyldunnar að erfitt gæti orðið að gera þeim til geðs. „Það er auðvitað fullt af sjálfskipuðum Simpsons-sérfræðingum sem geta glaðst yfir því að þetta sé ekki alveg eins og fyrirmyndin,“ segir Jakob og hlær. „En ég er allavega virkilega ánægður. Við fengum svo fína leikara,“ segir hann ennfremur.



 

Simpsons Loksins á leið á hvíta tjaldið.

Og það er hárétt hjá Jakobi, leikaralistinn er ekkert slor. Örn Árnason fer með hlutverk Hómers, Margrét Vilhjálmsdóttir talar fyrir Marge, Sigrún Edda Björnsdóttir fyrir Bart og Álfrún Örnólfsdóttir fyrir Lísu. Í öðrum stórum hlutverkum eru Ellert A. Ingimundarson, Þröstur Leó Gunnarsson, Helga Braga Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Jóhann Sigurðarson sem er sögumaður.



Jakob telur ekki ólíklegt að yngri kynslóðin sæki frekar í íslensku útgáfuna og sú eldri í þá ensku. Þá kunni íslenska útgáfan að henta þeim vel sem ekki eru nógu sleipir í ensku. Þó telur Jakob líklegt að margir muni sjá báðar útgáfurnar. „Já, allir alvöru aðdáendur sjá báðar. Þó ekki væri nema bara til að hneykslast á þeirri íslensku!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.