Skoðun

Við vorum bara fimm

Ögmundur Jónasson skrifar
Á þeim kjörtímabilum sem liðin eru síðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu saman ríkisstjórn hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í stað þess að framleidd væru 90 þúsund tonn af áli verða nú framleidd milljón tonn af áli og stefnir í enn meira – jafnvel þótt vitað sé að um er að ræða atvinnustarfsemi sem skapar minni virðisauka en flestar aðrar atvinnugreinar.

Kárahnjúkunum var fórnað, tekist var á um Þjórsárverin, Jökulárnar í Skagafirði og ekki er útséð um aðrar náttúruperlur sem ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks rennir hýru auga til. Og nú á að selja Landsvirkjun og öll hin orkufyrirtækin! Kannski eignast Alcan eða Alcoa Landsvirkjun og semja við sjálf sig um orkuverð.

Allir muna eftir Landssímasölunni, vatnafrumvarpinu, S-hópnum, einkavinavæðingunni og hinum staðföstu stuðningsmönnum Íraksinnrásarinnar. Kannski muna færri eftir frumvarpinu um auðlindir í jörðu þar sem einkaeignarrétturinn var færður langt niður í jarðskorpuna. Allir muna eftir afnámi húsnæðislaganna þar sem félagsleg úrræði voru strokuð út með þeim afleiðingum að efnalítið fólk á ekki lengur kost á því að eignast húsnæði. Sjálfstæðisflokkurinn segir nú brýnast að einkavæða heilbrigðiskerfið.

Misrétti fer vaxandi og mitt í allri velsældinni boðar stjórnmálaflokkur aðgerðaáætlun til að útrýma fátækt! Sá flokkur er að sjálfsögðu VG, sem hefur staðið vaktina undanfarin ár. Hve margir skyldu gera sér grein fyrir að við vorum bara fimm á þingi? Við hefðum verið öflugri helmingi fleiri að ekki sé minnst á fjórum sinnum fleiri, 20 talsins eins og þingmenn Samfylkingarinnar. Nú hræðast aðrir flokkar að VG kunni að eflast.

Þorsteinn Pálsson, ritstjóri þessa blaðs, skrifar leiðara skelfingu lostinn yfir þeim möguleika. Hann segir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eiga vel saman. Þeir flokkar þurfi lítið að slá af til að ganga í eina sæng.

En ég spyr: Væri það gott fyrir þjóðina að áfram yrði keyrð sama stefna – án undansláttar? Er ekki kominn tími til að fá svolitla hrygglengju í velferðar-, umhverfis- og utanríkismálapólitíkina á Alþingi? Væri það ekki til góðs að þingmannafjöldi VG á Alþingi yrði fjórfaldaður? Hugsum málið með reynslu undangenginna ára í huga.



Höfundur er þingmaður VG.





Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×