Óveður í Evrópu 1. nóvember 2006 18:30
22 menn hafa látist í miklum flóðum í suðaustanverðu Tyrklandi undanfarinn sólarhring. Þá rak norskan olíuborpall stjórnlaust í Norðursjó í fárviðri sem gekk yfir norðanverða Evrópu í nótt. Himnarnir hafa grátið yfir Tyrklandi undanfarna daga og vatnið á jörðu niðri vaxið eftir því. Staðfest er að 22 hafi týnt lífi í flóðunum og tuga er ennþá saknað. Versta slysið varð í Diyarbakir-héraði í suðaustanverðu landinu en þar sópaði vatnselgurinn rútu með fjórtán manns innanborðs út af veginum en fólkið var á leið í brúðkaup í héraðinu. Í Istanbul, stærstu borg landsins, hefur vatn flætt um götur og fjöldi fólks festist því í húsum sínum. Umtalsvert tjón hefur jafnframt orðið á ferðamannastöðum við Miðjarðarhafið. Í norðanverðri Evrópu hefur veðrið ekki verið mikið skárra undanfarinn sólarhring en þar gekk fárviðri yfir í nótt. Festar norsks olíuborpalls slitnuðu í veðurofsanum í Norðursjó þar sem dráttarbátur var með hann í togi. Verið er að flytja þá 75 sem eru á pallinum um borð í varðskip en þeir eru ekki taldir í hættu. Íbúar nærliggjandi landa fóru ekki varhluta af óveðrinu. Þannig fór Hamborg í Þýskalandi nánast á kaf vegna mikilla vatnavaxta í Saxelfi en skemmdir urðu þó ekki eins miklar og óttast var í fyrstu.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira