Sport

FH tapaði fyrstu stigum sínum á Kópavogsvelli

Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH á Kópavogsvelli í dag
Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH á Kópavogsvelli í dag Mynd/Hörður
Íslandsmeistarar FH töpuðu sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn skipulögðum Blikum í Kópavogi. Daði Lárusson kom heimamönnum yfir með sjálfsmarki um miðbik leiksins, en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir gestina á 70. mínútu. Skömmu síðar var Guðmundi Sævarssyni vikið af leikvelli og meistararnir töpuðu þar með sínum fyrstu stigum á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×