Ég hef aldrei lent í öðru eins 7. maí 2006 23:10 Martin Jol hefur aldrei lent í annarri eins uppákomu í bransanum.
Martin Jol knattspyrnustjóri Tottenham ætlar að kyngja þeim bitra bita að liðið missti af Meistaradeildarsæti vegna matareitrunar, þegjandi og hljóðalaust. Tottenham tapaði fyrir West Ham, 2-1 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu og Arsenal hrifsaði af nágrönnum sínum fjórða sæti deildarinnar með 4-2 sigri á Wigan. Jol var synjað um beiðni þess efnis að fresta leiknum þar sem 10 leikmenn liðsins fengu matareitrun á hótelinu sem þeir gistu á. En Jol stendur beinn í baki þrátt fyrir gríðarleg vonbrigði. "Ég hef aldrei lent í öðru eins í fótboltanum. Ég vil samt ekki kenna þessum kringumstæðum um tapið og ég gruna engan um græsku." sagði Tottenham stjórinn en hlaðborð sem leikmenn gæddu sér á kvöldið fyrir leik átti eftir að reynast liðinu fjötur um fót. "Við fengum okkur steik og kjúkling af hlaðborði þannig að ég hef svona grófa hugmynd um hvað olli matareitruninni. Læknir liðsins vakti mig svo kl. 5 í morgun til að líta á Chris Hughton sem var slappur. Aaron Lennon og Teemu Tainio veiktust fljótlega eftir það" sagði Jol og bætti við að Michael Dawson hefði farið langverst út úr matareitruninni. "Dawson var mjög veikur en hann lék samt allan leikinn. En Michael Carrick gat ekki haldið áfram að spila og ég skipti honum út af á 64. mínútu." bætti Jol við. Hann fór fram á að leiknum yrði frestað til morguns en það vildu forráðamenn West Ham ekki þar sem þeir leika bikarúrslitaleikinn gegn Liverpool um næstu helgi. "Ég sýni því sjónarmiði West Ham fullan skilning" sagði Jol sem því næst bað um að gefa sínum mönnum alla vega tíma til kl. 6 síðdegis. Það sem skipti mestu máli á þessum tímapunkti var nefnilefa að leikmenn kæmu niður vökva og næringu sem þeir áttu í vandræðum með framan af degi. "Lögreglan og fólk úr heilbrigðisgeiranum ráðfærði sig með okkur en það reyndist bara hægt gefa okkur tíma til kl. 4. Ég hafði því í raun engan valkost og varð að fara með liðið út á völlinn. Ég gat ekki hugsað mér að taka þá áhættu á að lenda í því sama og Middlesbrough fyrir nokkrum árum." sagði Jol en umrætt atvik átti sér stað árið 1997 þegar Boro gat ekki teflt fram liði undir svipuðum kringumstæðum og mætti ekki til leiks. Þrjú stig voru dregin af liðinu sem féll úr deildinni fyrir vikið. En Jol lítur á björtu hliðina og sættir sig við að liðið náði þó Evrópusæti eftir allt saman. "Í heildina litið er ég vonsvikinn en við erum í 5. sæti með 65 stig og í Evrópukeppni sem er ótrúlegur árangur fyrir liðið." sagði hinn jarðbundni Jol að lokum.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Fréttir Íþróttir Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Söguleg endurkoma Knicks Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Sjá meira