Tekjur Hitaveitu Suðurnesja jukust milli ára 3. mars 2006 13:30
Rekstrartekjur Hitaveitu Suðurnesja (HS) námu 4,68 milljörðum króna á síðasta ári og er það 873 milljóna króna aukning frá 2004, að því er fram kemur í ársuppgjöri fyrirtækisins fyrir síðasta ár. Um 23% hækkun tekna stafar af aukningu í raforkusölu um 545 milljónir króna og aukningu í öðrum tekjum um 261 milljón krónur. Rekstrargjöld án afskrifta námu 2,4 milljörðum króna en voru rúmar 2,3 milljarðar króna árið áður. Hækkun rekstrargjalda um 81 milljón króna er aðallega vegna aukningar á kostnaði við raforku og raforkuflutning um 215 milljón krónur. Þá nam hagnaður HS tæpum 1,6 milljörðum króna á síðasta ári en hann var 880 milljónir króna árið 2004. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS hf. bókfærðar á 24,6 milljarða króna, þar af eru veltufjármunir 1,9 milljarðar króna. Eignir hækkuðu um 6,6 milljarða frá fyrra ári. Aukningin er aðallega vegna fjárfestinga HS í Reykjanesvirkjun, sem námu 6,1 milljarði á árinu. Skuldir HS hf. nema samkvæmt efnahagsreikningi 10,8 milljörðum króna, þar af eru skammtímaskuldir 2,7 milljarðar króna. Skuldir hafa hækkað um 5,4 milljarða króna á milli ára, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hækkunin skýrist af lántökum HS vegna Reykjanesvirkjunar. Eigið fé HS hf. var lækkað um 329 milljónir króna í ársbyrjun vegna leiðréttingar á lífeyrisskuldbindingu sem hvílir á félaginu og var eiginfjárhlutfall síðasta árs 56%, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þá segir að rekstrarhorfur séu góðar á árinu, umsvif fari vaxandi og fjárfestingar miklar. Áfram verði mikil uppbygging kerfa samfara aukningu byggðar á þjónustusvæði fyrirtækisins og aukinni orkuvinnslu. Unnið verður að rannsóknum á frekari virkjunarkostum til framtíðar og er verið að afla rannsóknarleyfa í því skyni. Stærstu einstöku verkefnin eru lok framkvæmda við Reykjanesvirkjun og síðan framkvæmir við orkuver 6 í Svartsengi sem er 30 MW og verður gangsett fyrir árslok 2007. Með þessum orkuverum eykst raforkuframleiðsla fyrirtækisins úr 45 MW í 175 MW.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira