Sport

Garðar kom inn á hjá Dunfermline

Garðar Gunnlaugsson lék sínar fyrstu mínútur í skoska fótboltanum í dag þegar hann kom inn á sem varamaður hjá Dunfermline sem tapaði á útivelli, 3-1 fyrir Hibernian í Edinborg. Garðar sem fór frá Landsbankadeildarliði Vals í vetur kom inn á þegar 16 mínútur voru til leiksloka en náði ekki að setja mark sitt á leikinn í þetta sinn.

Dunfermline er í botnbaráttunni í Skotlandi og situr í 11. og næst neðsta sæti með 13 stig, fjórum stigum á eftir næsta sæti sem Falkirk vermir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×