Valur búinn að kaupa Helga Sigurðsson 17. nóvember 2006 06:00 Helgi sést hér í leik með Fram gegn Leikni í sumar. fréttablaðið/valli
Lausn fékkst í deilu Helga Sigurðssonar og Fram í gær þegar Valur keypti Helga af Safamýrarliðinu. Kaupverðið er talið vera á milli 4-5 milljónir króna. Samkvæmt heimasíðu Fram tókst samkomulag á milli liðanna í vikunni og Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri rekstrarfélags meistaraflokks Fram, virðist því hafa verið að segja ósatt í samtali við Fréttablaðið á miðvikudagskvöld þegar hann sagði ekkert tilboð vera komið frá Val. Helgi fór á dögunum fram á að yfirgefa félagið og kom sú bón eins og þruma úr heiðskíru lofti. Fram neitaði bón Helga í fyrstu og sagði að hann myndi frekar sitja upp í stúku en spila með öðru félagi. Hann fengi að standa við gerðan samning sem átti að renna út eftir eitt ár. „Það er gott að fá lausn í málið því þetta er búinn að vera erfiður tími," sagði Helgi í gærkvöldi en hann mun skrifa undir þriggja ára samning við Val. „Það var stórt skref að ákveða að yfirgefa Fram og það var erfið ákvörðun. Ég vil ekkert ræða sérstaklega af hverju ég vildi fara. Ég hef útskýrt það fyrir stjórninni og það er nóg finnst mér." Talað var um að Helgi hefði greitt hluta kaupverðsins sjálfur en hann hló að sögunni og sagðist ekki svara slíkum sögusögnum. - hbg
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Pepsi Max-deild karla Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“