Meirihluti vill segja skilið við Georgíu 14. nóvember 2006 05:30 Atkvæði fellur Kosningarnar í Suður-Ossetíu staðfesta fyrst og fremst vilja héraðsbúa til þess að segja skilið við Georgíu. MYND/AP
Kjósendur í Suður-Ossetíu samþykktu nánast einróma í atkvæðagreiðslu á sunnudaginn að lýsa yfir formlegu sjálfstæði héraðsins, sem tilheyrir Georgíu en hefur þó notið sjálfstæðis í reynd í meira en áratug. Samkvæmt bráðabirgðatölum greiddu 99 prósent kjósenda sjálfstæði atkvæði sitt. Suður-Ossetíumenn virðast almennt vilja sameinast Rússlandi þegar fram líða stundir. Sjálfstæði héraðsins frá Georgíu er fyrst og fremst hugsað sem áfangi í þá átt. Meira en þúsund manns létu lífið í harðvítugri borgarastyrjöld aðskilnaðarsinna við Georgíuher á árunum 1991 til 1992, sem braust út í beinu framhaldi af falli Sovétríkjanna. Stjórn Suður-Ossetíu er í nánum tengslum við Rússland, sem viðurkennir ekki heldur formlega sjálfstæði héraðsins en hefur veitt íbúum þess leyfi til að ganga með rússnesk vegabréf. Rússneska rúblan er sá gjaldmiðill, sem notaður er í Suður-Ossetíu, og rússneski fáninn blaktir víðast við hún við hlið héraðsfánans. Kosningarnar á sunnudaginn breyta í sjálfu sér engu um formlega stöðu Suður-Ossetíu vegna þess að Georgía viðurkennir ekki sjálfstæði héraðsins og þar með ekki heldur lögmæti kosninganna.
Erlent Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Sjá meira