Auk kvikmyndarinnar undirbýr Ari nú af kappi fjögurra þátta sjónvarpsmynd um heim eiturlyfja með aðstoð Kristins Hrafnssonar fréttamanns.
„Við stefnum á að fara til Litháens í byrjun desember og þótt Vaidas sé hryggjarsúlan í sjónvarpsþáttunum ætlum við frekar að beina sjónum okkar að því hvernig eiturlyfin koma til landsins, hvaðan þau koma, hver markhópurinn er og ekki síst hverjir þessir ósýnilegu stóru laxar eru sem aldrei finnast,“ segir Ari og var algjörlega óhræddur að hreyfa við þessum heimi.

„Ég og Hafsteinn Sigurðsson höfum verið að vinna í handritinu og Þórir Snær Sigurjónsson er okkur innan handar,“ útskýrir Ari en hugmyndin kviknaði fyrst fyrir tveimur árum þegar hann og Sigurjón Sighvatsson sátu í förðunarherbergi Stöðvar 2 með Jónasi Inga Ragnarssyni, einum sakborninga í málinu.
„Ég leit á Sigurjón og spurði hann hvort þetta væri ekki eitthvað sem við þyrftum að fjalla um,“ útskýrir Ari og í kjölfarið fóru hjólin að snúast.
Ari hefur brennandi áhuga á þessum heimi og segir kvikmyndina Kristjana F. sem byggð er á hinni heimsþekktu bók Dýragarðsbörnin hafa haft mikil áhrif á sig. „Hún bjargaði mér og varð til þess að ég hef aldrei snert fíkniefni,“ segir Ari. „Fíkniefnavandinn er samfélagslegt vandamál og við eigum ekki alltaf að vera að kaupa plástra til að græða sárin heldur ráðast frekar að rót vandans,“ segir Ari sem vonast til að bæði sjónvarpsþættirnir og kvikmyndin leiði til þess að fólk skoði hlutina frá öðru sjónarhorni.
„Ég vil reyna að segja þessa sögu án þess að vera fullur af fordómum.“