Sport

Sigur hjá Lemgo

Logi Geirsson skoraði ekki í gær.
Logi Geirsson skoraði ekki í gær.

Alexander Petterson skoraði fjögur mörk og Einar Hólmgeirsson tvö fyrir Grosswallstadt sem sótti ekki gull í greipar í heimsókn sinni til Lemgo í gær og tapaði 30-23. Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson léku með Lemgo en komust ekki á blað í leiknum. Tomas Mocsai var markahæstur heimamanna með níu mörk en Florian Kehrmann var með sjö.

Með sigrinum komst Lemgo upp í 5. sæti deildarinnar með 11 stig, einu stigi minna en topplið Hamburg, Gummersbach og Nordhorn. Grosswallstad er í 9. sæti með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×