Sport

Enn tapar Notts County

Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku annari deildinni, tapaði enn einum leiknum í kvöld þegar það tók á móti Boston United á heimavelli sínu. Boston hafði sigur 2-1. Staðan eftir aðeins 11 mínútur var orðin 2-0 fyrir Boston, en annað markið var sjálfsmark. Tveimur leikmönnum Boston var vikið af leikvelli í síðari hálfleiknum, en þrátt fyrir það náði Notts County aðeins að minnka muninn. Þar var að verki Edwards á 90. mínútu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×