Baugur kaupir matvælafyrirtæki 3. ágúst 2005 00:01
Baugur Group og Talden Holding hafa keypt matvælafyrirtækið Woodward Foodservice af Giant Bidco sem yfirtók Big Food Group fyrr á þessu ári. Kaupin eru gerð í samvinnu við stjórnendur Woodward. Lloyds TSB bankinn fjármagnar kaupin.Woodward Foodservice veltir 180 milljónum punda á ári og stjórnendahópur þess hefur undir forystu Ed Hyslop framkvæmdastjóra keypt umtalsverðan hlut í fyrirtækinu með fulltingi Baugs og Talden. Woodward hefur á boðstólum fjölbreytt úrval matvæla, þar á meðal ferskan fisk og kjöt, frysta, kælda og innpakkaða matvöru fyrir veitingahús, krár, hótel og skóla um allt Stóra-Bretland. Í tilkynningu frá Baugi segir að undanfarin ár hafi félagið vaxið úr því að vera lítið og staðbundið fyrirtæki í að verða þriðja stærsta fyrirtækið í Stóra-Bretlandi á sviði veitingaþjónustu og það sem hraðast vex. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri UK Investments hjá Baugi Group, segir að framundan séu spennandi tímar hjá Woodward sem sjálfstæðu fyrirtæki. „Við erum sannfærð um að það séu fjölmörg tækifæri sem bjóðast í þessum geira og að Woodward verður í góðri aðstöðu til að eflast í náinni framtíð.“ Velta Woodward Foodservice hefur aukist úr 96 milljónum punda í rúmlega 150 milljónir punda á undanförnum tveimur árum, að því er segir í tilkynningu Baugs, og búist er við því að hún nái 180 milljóna punda markinu á þessu ári. Hjá fyrirtækinu starfa 1.100 manns á 14 dreifingarstöðvum í Stóra-Bretlandi í London, Bracknell, Crawley, Bristol, Birmingham, Kingswinsford, Barnsley, Rhyl, Bodelwyddan, Durham, Glasgow, Bellshill, Aberdeen og Inverness
Innlent Viðskipti Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Sjá meira