Eiturlyfjamarkaðurinn 5. júlí 2005 00:01
Götuverð á kókaíni hefur hríðfallið á einum mánuði úr tólf þúsund krónum grammið niður í sjö þúsund og fimm hundruð krónur, samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Þessi verðlækkun getur verið vísbending um að einhverjum hafi nýverið tekist að smygla miklu af efninu til landsins. Verðið hefur lengst af verið um ellefu þúsund krónur fyrir grammið en hefur aldrei verið lægra en núna. Kunnugir telja að ástæða þessa kunni að vera óvenju mikið framboð af kókaíni á markaðnum. Með öðrum orðum að einhverjum hafi tekist að smygla miklu af kókaíni til landsins nýverið. Amfetamínið hefur hinsvegar hækkað frá fyrra mánuði og kostar grammið af því þrjú þúsund sjö hundruð og sjötíu krónur, sem slagar upp í að vera hæsta verð til þessa. Það bendir aftur til þess að skortur sé á efninu á götumarkaðnum, og kann það að eiga sinn þátt í því að lögreglan lagði hald á fjögur kíló af amfetamíni í fórum tveggja litháa við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu í síðustu viku. Hassgrammið gengur nú á átján hundruð krónur, sem er nálægt meðallagi, en það er nokkuð sammerkt með öllum tegundum fíkniefna, að þau eru mun dýrari hér á landi en í nágrannalöndunum.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Sjá meira