Mikill hiti á fasteignamarkaði 21. febrúar 2005 00:01
Mikill hiti er nú á fasteignamarkaði að því er fram kemur í hálffimmfréttum KB banka. Samkvæmt Fasteignamati ríksins hækkaði verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 5,5% í janúar frá fyrri mánuði en fjölbýli hefur hækkað um rúm 25% á síðastliðnum tólf mánuðum. Ef litið er til sérbýlis þá hækkaði sú tegund fasteigna um 4% í verði í janúar frá fyrri mánuði, en alls um allt að 35% ef miðað er viðð síðastliðna tólf mánuði. KB banki segir ljóst að sá mikli hiti sem nú er á fasteignamarkaði sé bein afleiðing af lægri fjármögnunarkostnaði og auknu veðrými. Til að mynda hafi verð á sérbýli hækkað alls um 21% frá því í ágúst sl. þegar bankarnir hófu að bjóða íbúðalán til almennings. Sú mikla hækkun sem mælist á fasteignaverði í janúar mun koma inn af miklum þunga í vísitölu neysluverðs við næstu mælingu, samkvæmt KB banka, en rekja má um helming af hækkun vísitölu neysluverðs á síðastliðnum tólf mánuðum rakleiðis til þenslu á fasteignamarkaðnum. Þess má geta að húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs er reiknaður með 3. mánaða hlaupandi meðaltali og því munu áhrif þessarar hækkunar vara við næstu þrjár mælingar. Í kjölfarið má gera ráð fyrir því að verðbólga muni enn um sinn vera utan við efri þolmörk peningamálastefnunnar, þ.e. 4% verðbólguhraða.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira