Spenna komin í kapphlaupið 13. október 2005 14:44
Spenna hefur á ný færst í kapphlaupið um Hvíta húsið. Kannanir benda til þess að John Kerry hafi sótt verulega á í kjölfar kappræðna við George Bush í síðustu viku. Væri gengið að kjörborðinu í dag fengju bæði George Bush og John Kerry fjörutíu og níu prósent atkvæða, sé eitthvað að marka nýjustu könnun Gallups í Bandaríkjunum. Það væri að sjálfsögðu versta hugsanlega niðurstaða þar sem endalausar deilur um of- eða vantalin og ógild atkvæði fylgdu líklega í kjölfarið, eins og á Flórída fyrir fjórum árum. 57 prósent telja Kerry hafa staðið sig betur í kappræðunum en 25 prósent Bush. Fleiri töldu jafnframt að hann hefði sett rök sín fram með skýrum hætti og að hann væri betur gefinn. Bush hefur þó enn forskot á Kerry þegar stríðsreksturinn í Írak er annars vegar en Kerry er betur treyst í efnahagsmálum. Helmingi fleiri telja Bush líklegri en Kerry til að standa sig í baráttunni gegn hryðjuverkum. Og öfugt við það sem kannanir sýndu fyrir kappræðurnar gera aðspurðir nú ráð fyrir því að Kerry standi sig betur en Bush í næstu hrinu, sem verður áttunda þessa mánaðar, en þá verður opinn fundur haldinn í St. Louis þar sem gestum gefst færi til að spyrja frambjóðendurna. Báðir sendu frambjóðendurnir frá sér nýjar auglýsingar um helgina þar sem þeir túlka kappræðurnar á fimmtudaginn hvor með sínum hætti.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira